Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)
Áhöfnin á varðskipinu Þór, sérsveit ríkislögreglustjóra, séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar og liðsmenn bandaríska sjóhersins hafa í vikunni æft aðgerðir á sjó, þar á meðal uppgöngu í skip og eftirför, sem er liður í varnaræfingunni Norður-Víkingi sem hófst í vikunni. Sveitirnar æfðu meðal annars með áhöfn flutningaskips á Faxaflóa í gær þar sem farið var um borð í skipið. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kom einnig að æfingunni sem heppnaðist vel. Mikil áhersla er lögð á samhæfingu sveita og búnaðar í æfingu sem þessari þannig að bandalagsþjóðir geti unnið skipulega að samræmdum markmiðum.
Norður Víkingur er haldin á grundvelli tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 og fer að jafnaði fram á tveggja ára fresti. Meginþungi æfingarinnar fer fram á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en æfingin fer einnig fram á sjó. Gert ráð fyrir að varðskip Landhelgisgæslunnar verði við áframhaldandi æfingar í Faxaflóa næstu...
View original post